Þetta er magnað

Þetta atriði er algjörlega magnað.
Þetta atriði er algjörlega magnað.
Adele var gestur í spjallþætti Ellen í vikunni og tók hún meðal annars þátt í falinni myndavél, eða eins konar stjórnun.

Ellen sat inni í myndverinu á meðan hún stjórnaði Adele á Boostbar. Hún pantaði allskonar hluti með töluverðum sérþörfum og er atriðið gjörsamlega stórbrotið.

Þetta var ekki mikið mál fyrir bresku söngkonuna og stóð hún sig einstaklega vel. Atriðið má sjá hér að neðan.

Stöð 2 mun hefja sýningar á geysivinsælum spjallþáttum Ellen DeGeneres frá og með 7. mars næstkomandi.

Spjallþáttadrottningin Ellen fær allar stærstu stjörnur heimsins í viðtal til sín auk þess að bjóða upp á ýmis skemmtileg uppátæki í hverjum þætti. Þættirnir verða sýndir mánudaga til fimmtudaga á Stöð 2 kl 17:45 og endursýndir morguninn eftir. 




Ummæli